Vörumerki
Svetruck stórlyftarar
Svetruck er sænskur framleiðandi stórlyftara fyrir þyngstu verkefnin — timbur, gáma, stálvinnslu og hafnarrekstur.

Svetruck hefur framleitt stórlyftara í Svíþjóð frá árinu 1977 og sérhæfir sig í tækjum með mikla burðargetu. Frá upphafi hafa yfir 6.300 lyftarar verið afhentir til meira en 70 landa. Vélarnar eru byggðar fyrir samfellda notkun utandyra og við erfiðar aðstæður.
Í boði eru mótvægislyftarar með mikilli burðargetu, timburlyftarar, gámalyftarar og sérsmíðaðar útfærslur með þeim búnaði sem verkefnið krefst.
Þar sem hvert verkefni er ólíkt sérsníðum við tillögu að tæki eftir þyngd, lyftihæð, aðstæðum og notkun. Hafðu samband og við förum yfir málið með þér.
Hafið samband fyrir verð og afhendingartíma.
